YRGCHFF

YRGCHFF

250g / Baunir
2.490 kr
Fara í upplýsingar um vöru
YRGCHFF

YRGCHFF

2.490 kr
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

Hér er mikið um að vera. Kaffi frá hinu rómaða Yirgacheffe svæði í sunnanverðri Eþíópíu. Frjósöm moldin og heitir dagar en svalar nætur eru lykilþættir sem gera kaffiplöntunni kleift að dafna í yfir 2000 metra hæð og draga til sín einstakt bragð.
Við höfum kaffið lítið brennt til þess að ávaxtatónar þess fái sem best notið sín.
Sagan segir að kaffi sé upprunið frá Eþíópíu og það fer ekkert á milli mála að lengi býr að fyrstu gerð.

Þetta kaffi á skilið að vera í litskrúðugum og fallegum bolla. (Helst stórum)

Stærð
Gerð
Sendingar og skilamálar

Við leggjum okkur fram við að afgreiða og senda allar pantanir eins hratt og örugglega og unnt er. Þar sem við ristum hverja pöntun sérstaklega fyrir hvern kúnna, reynum við að senda frá okkur innan 2 virkra daga. Komi upp einhver töf látum við alltaf vita.

Ef þú þarft að skila eða skipta vörum, eða ef eitthvað óvænt kemur upp, þá er alltaf einfalt að hafa samband við okkur.

Þú gætir fýlað þetta