Um Kaffistofuna

Að gera hið einfalda frábært

Hérna byrjaði þetta

Frá fyrsta degi hefur markmiðið ekki verið að opna stærsta kaffihúsið, heldur að fullkomna handverkið. Okkar „unfair advantage“ hefur alltaf falist í mjög ákveðinni hugmyndafræði: Að gera einfalda hluti frábæra með agaðri nálgun, endurtekningu og miskunnarlausri áherslu á gæði.


Lesa nánar um sögu okkar

Kynntust okkur

Ármann Atli Eiríksson

Framkvæmdastjóri

Ármann er framkvæmdastjóri og eigandi Kaffistofunnar. Hann er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði með áherslu á fjármál frá Háskóla Íslands og stundaði að auki sérnám við London School of Coffee í kaffibruggun. Hann býr yfir víðtækri reynslu úr fjármálageiranum, meðal annars frá störfum sínum hjá Íslandsbanka og Kaldbaki, þar sem hann vann að greiningu, rekstri og uppbyggingu verkefna. Í dag ber Ármann ábyrgð á öllum lykilþáttum Kaffistofunnar, þar á meðal kaffiristun, kaffibarþjónustu, fjármálum, innkaupum og vöruþróun ásamt daglegum rekstri. Hann leiðir uppbyggingu fyrirtækisins af festu með ríka áherslu á gæði, hagkvæmni og sjálfbæran vöxt.

Luiza Santos

Kaffibarþjónn

Luiza er kaffibarþjónn hjá Kaffistofunni og aðstoðar jafnframt við almennan rekstur fyrirtækisins. Hún er menntaður matvælaverkfræðingur frá Brasilíu og býr yfir víðtækri reynslu úr veitingageiranum, en hún hefur meðal annars starfað erlendis við kaffihúsarekstur, kakóristun og pralíngerð. Luiza býr yfir sterkum faglegum grunni í meðhöndlun hráefna, framsetningu og þjónustuferlum. Í dag sinnir hún kaffibarþjónustu og daglegum rekstri Kaffistofunnar, þar sem hún tekur virkan þátt í þróun og útfærslu drykkja, veitir uppbyggilega gagnrýni á ferla og aðstoðar við pantanir og skipulag. Reynsla hennar og þekking styður með afgerandi hætti við stöðug gæði og faglega upplifun viðskiptavina.

Tilbúinn að prófa kaffið okkar?

Skoða úrvalið