Terms of service

 

Með notkun vefsíðu Kaffistofunnar ehf. samþykkir notandi þá skilmála sem hér greinir. Kaffistofan áskilur sér rétt til að uppfæra efni á vefsíðu, verð og vöruúrval án fyrirvara. Villur í verði eða upplýsingum geta komið upp og er Kaffistofan frjálst að leiðrétta slíkt eða hafna pöntun ef rangar upplýsingar hafa áhrif á viðskipti.

Pantanir teljast staðfestar þegar staðfesting berst í tölvupósti. Öll verð eru í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt. Sendingarkostnaður reiknast samkvæmt gildandi verðskrá Íslandspósts eða þeim valkostum sem í boði eru við kaup.

Kaffistofan ber ekki ábyrgð á töfum eða tjóni sem rekja má til sendingaraðila eða utanaðkomandi þátta. Áskriftir má segja upp hvenær sem er nema annað sé tekið fram.