Sagan okkar

Frá fyrsta degi hefur markmiðið ekki verið að opna stærsta kaffihúsið, heldur að fullkomna handverkið. Okkar „unfair advantage“ hefur alltaf falist í mjög ákveðinni hugmyndafræði: Að gera einfalda hluti frábæra með agaðri nálgun, endurtekningu og miskunnarlausri áherslu á gæði.

2020

Hugmyndin reynd — Kaffivagn Kaffipressunnar

Vorið 2020 var ákveðið að láta reyna á hugmyndina, en á forsendum skynseminnar. Í stað þess að taka mikla áhættu með dýru húsnæði var fjárfest í kaffivagni og hann staðsettur á pallinum hjá KA. Markmiðið var skýrt: Að sanna að markaður væri fyrir sérkaffi í hæsta gæðaflokki á Akureyri án þess að kaffæra reksturinn í föstum kostnaði. Viðtökurnar sýndu okkur svart á hvítu að við vorum á réttri leið: Fólk vildi gæði, ekki bara umgjörð.

Vöxtur og viðnám — Frá vörumerki til bruna

Árið 2021 færðist fókusinn frá því að vera bara „kaffivagn“ yfir í að verða vörumerki. Við hófum samstarf við African Coffee Co í London og fórum að selja sérvaldar baunir undir eigin merki. Melabúðin í Reykjavík varð fyrsta verslunin til að selja baunirnar okkar, sem var lykilskref í að koma vörumerkinu á framfæri utan Akureyrar.

Um jólin 2021 urðum við hins vegar fyrir miklu áfalli þegar kaffivagninn eyðilagðist í eldsvoða. Það neyddi okkur til endurmats. Í stað þess að gefast upp sýndi atvikið okkur mikilvægi þess að byggja rekstur sem stæði ekki og félli með einu tæki. Við settum fullan kraft í netverslun og sölu á baunum — ákvörðun sem tryggði að vörumerkið lifði þótt vagninn væri farinn.

2021
2024

Heimilið verður til — Brekkugata 5

Eftir að hafa byggt upp þekkingu og innviði var kominn tími á næsta stóra skref. Kaffipressan opnaði sérkaffihús á Brekkugötu 5. Staðurinn var hannaður út frá „coffee-first“ hugmyndafræðinni: Einfaldur matseðill, stöðluð ferli og fullkomin stjórn á upplifun viðskiptavinarins.

Strax við opnun notuðum við baunir frá Kaffistofunni í Hafnarfirði. Seint á árinu, þegar Sverrir (stofnandi Kaffistofunnar) heimsótti Akureyri, varð ljóst að gildi fyrirtækjanna fóru saman. Í kjölfarið var tekin ákvörðun um að Kaffipressan tæki við rekstri Kaffistofunnar og sameiginleg framtíð beggja vörumerkja var mótuð.

Hringnum lokað — Kaffistofan og brennsla í Týsnesi

Í byrjun árs 2025 sameinuðust Kaffipressan og Kaffistofan formlega undir einu nafni: Kaffistofan. Stærsta breytingin var flutningur kaffibrennslunnar norður til Akureyrar í nýtt iðnaðarhúsnæði í Týsnesi. Luiza var ráðin inn sem lykilstarfsmaður og nú stýrum við allri keðjunni sjálf: Við flytjum inn, brennum í Týsnesi og hellum upp á í Brekkugötu.

Í dag er Kaffistofan eina sérkaffibrennslan á Akureyri og rekur heildstætt kerfi þar sem kaffihús, brennsla og netverslun vinna saman sem ein heild. Markmiðið er enn það sama og í upphafi: Að litlir hlutir skipti máli og að gott kaffi verði til með stöðugleika, ferlum og natni.

2025