Shipping policy
Kaffistofan vinnur allar pantanir með ferskleika í forgrunni og rístir hverja pöntun sérstaklega. Leitast er við að senda pantanir innan einnar til tveggja virkra daga. Verði tafir látum við viðskiptavin vita um leið og unnt er.
Sendingar eru afhentar Íslandspósti og gilda afhendingar- og ábyrgðarreglur Íslandspósts frá því að sending fer úr okkar vörslu. Ef upp koma vandamál eftir afhendingu aðstoðar Kaffistofan viðskiptavini eftir bestu getu.
Viðskiptavinir geta valið að sækja pantanir í verslun okkar að Brekkugötu 5, 600 Akureyri, án sendingarkostnaðar.