Privacy policy

Kaffistofan ehf. vinnur eingöngu með þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru til að afgreiða pantanir og reka þjónustu okkar á öruggan og ábyrgan hátt. Safnað er upplýsingum er varða nafn, heimilisfang, netfang, símanúmer, pöntunarupplýsingar og greiðsluupplýsingar. Kortaupplýsingar eru unnar af greiðslugátt Teya og eru ekki varðveittar af Kaffistofunni.

Upplýsingar eru nýttar til að afgreiða pantanir, hafa samskipti við viðskiptavini, vinna með áskriftir og bæta þjónustu. Upplýsingum er aðeins miðlað til þriðju aðila þegar nauðsynlegt er til afgreiðslu pantana, svo sem til Teya vegna greiðsluvinnslu og Íslandspósts vegna sendinga. Upplýsingar eru ekki afhentar eða seldar öðrum aðilum.

Viðskiptavinir eiga rétt á að óska eftir upplýsingum um vinnslu persónuupplýsinga, leiðréttingu á röngum upplýsingum eða eyðingu gagna sem ekki eru lengur nauðsynleg. Beiðnir skulu berast á kaffipressan@gmail.com.