Ertu í leit að kaffisambandi?

Við erum alltaf í leit að spennandi samstarfsaðilum. Hvort sem þú ert með kaffihús, veitingastað, stóran vinnustað eða bara með góða hugmynd, þá viljum við gjarnan heyra frá þér.
Við bjóðum uppá allskonar samstarf bæði í heildsölu á kaffi sem og hverskonar vöruþróun og skemmtilegheit. Kaffistofan býr líka yfir mikilli þekkingu og reynslu á smásölumarkaðinum og rekstri veitingastarfsemi þannig að við getum komið með ýmislegt annað en kaffi að borðinu. Hafðu samband við okkur og skoðum hvað við getum gert saman.